Fjársjóður framtíðarListahátíð barna er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra leikskóla bæjarins. Markmið hátíðarinnar er m.a. að safna á einn stað og einum tíma verkum sem sýna sköpunargleði barna í Reykjanesbæ svo íbúar bæjarins fái tækifæri til að sjá sköpunarmáttinn sem býr í börnunum okkar.

Elstu börn leikskólanna vinna margs konar myndlistarverk og önnur verkefni undir ákveðinni yfirskrift og er afraksturinn sýndur í Duushúsum að vori þá daga sem Listahátíðin stendur yfir. Á sama tíma koma leikskólarnir í skipulagðar heimsóknir í safnið, skoða sýninguna og standa fyrir skemmtidagskrá.

Listahátíð barna 2009 verður haldin dagana 30. apríl - 8. maí í Duushúsum og Frumleikhúsinu. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er VINÁTTA og vinna börnin að margvíslegum verkefnum henni tengdri s.s. málverkum og skúlptúrum auk þess sem þau æfa söngva og standa fyrir skemmtidagskrá. Einnig munu börnin skapa Vinaland úr leir sem gestum og gangandi verður boðið að vinna með þeim.