
Safnkosturinn er afar fjölbreyttur, segja má að safnið eigi verk úr öllum helstu flokkunum, inni- og útiverk. Virk og markviss söfnun, þ.e. söfnun eftir söfnunarstefnu hefur verið viðhöfð frá og með árinu 2004 og ávallt tekið mið af því fjármagni sem hverju sinni er úthlutað til listaverkakaupa. Þeir listamenn sem sýna í Listasalnum skilja einnig ávallt eftir verk til handa safninu. Safneignin nú er orðin 558 verk.
Í safnkostinum er mjög skemmtileg blanda af listaverkum t.d. verk eftir gömlu íslensku meistarana, verk eftir gamla listamenn frá Suðurnesjum, verk eftir staðarlistamenn eins og t.d. Baðstofuhópinn, verk eftir unga listamenn frá svæðinu, verk eftir okkar helstu samtímalistamenn, verk eftir sjálflærða listamenn og útlenda listamenn.
Gömlu meistararnir eru t.d. Þórarinn B. Þorláksson, bræðurnir Ásgrímur og Jón Jónsson, bræðurnir Finnur og Ríkarður Jónsson, Ásmundur Sveinsson, Jóhannes Sveinsson Kjarval, Ólafur Túbals og Jón Stefánsson svo einhverjir séu nefndir. Eitt af helstu markmiðum safnsins er varðveisla safneignarinnar.
Eitt af verkefnum Listasafnsins Reykjanesbæjar er að sýna safneignina og efna til sérsýninga á safneigninni í desember á ári hverju. Auk þess sem vel flest verkanna hanga til sýnis í stofnunum bæjarins.