Gjöf frá RammaÍ dag kom Einar Guðberg Gunnarsson færandi hendi til Listasafns Reykjanesbæjar með tvö málverk að gjöf til safnsins frá fyrrum eigendum fyrirtækisins Ramma. Auk Einars stýrðu fyrirtækinu þeir Sigurþór Stefánsson og Jón Ármann Arnoddsson. Myndirnar eru eftir Suðurnesjamennina og listamennina góðkunnu Óskar Jónsson og Guðmund Maríusson. Mynd Guðmundar keyptu þeir félagar beint af honum sjálfum árið 1982 en þá var hann starfsmaður í Ramma. Mynd Óskars keyptu þeir um áratug fyrr en báðar prýddu þær skrifstofur Ramma alla tíð þar til nú er þeir færðu Listasafninu myndirnar til varðveislu.   Svo skemmtilega vill til að nú um Ljósanæturhelgina verður formlega tekið í notkun nýtt varðveisluhúsnæði Byggðasafns, Listsafns og Skjalasafns í sjálfu Rammahúsinu sem þeir félagar byggðu á sínum tíma og því kannski hægt að segja að myndirnar séu komnar aftur heim. Listasafn Reykjanesbæjar þakkar þeim félögum þessa góðu gjöf en eitt af markmiðum Listasafnsins er einmitt að efla listaverkaeign safnsins svo hún gefi góða mynd af, annars vegar listamönnum svæðisins og hins vegar samtímalist á landinu öllu.
Guðmundur Rúnar     Föstudaginn 3. september verður opnuð sýning á verkum Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar í Listasafni Reykjanesbæjar. Um einskonar innsetningu er að ræða þar sem unnið er með ljós og myrkur, veggverk og skúlptúra. Heiti sýningarinnar vísar hvoru tveggja til sjónar og blindu sem segja má að sé megin viðfangsefni sýningarinnar. Sýningin er einnig áminning um að ekki er sjálfgefið að veröldin sýni sig öll eins og hún er, þótt öll skynfæri séu virk. Listamaðurinn ætlast enda til að verkin séu snert auk þess sem í uppröðun þeirra er falið orðið „snertið" á blindraletri. Segja má að sýning Guðmundar Rúnars sé eins konar gagnrýnin úttekt á því hvernig við hin sjáandi umgöngumst veröldina og um leið tilraun til að búa til myndlist sem miðlar innihaldinu bæði til sjáandi fólks og blindra. Safnið gefur að venju út vandaðan litprentaðan bækling á ensku og íslensku um sýninguna en að auki verða prentaðir bæklingar á blindraletri.   Sýningin er á dagskrá Ljósanætur, menningarhátíðar Reykjanesbæjar og stendur til 17. október.  
Efnaskipti myndSunnudaginn 30. apríl kl. 14.00 mun Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur leiða gesti og gangandi um sýninguna EFNASKIPTI í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin sem er liður í LISTAHÁTÍÐ er samsýning 5 textíllistakvenna, þeirra Önnu Líndal, Guðrúnar Gunnarsdóttur, Hildar Bjarnadóttur, Hrafnhildar Arnardóttur og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Allir velkomnir og heitt á könnunni. 
EfnaskiptiFramlag Listasafns Reykjanesbæjar til Listahátíðar 2010 er sýningin Efnaskipti eða Metabolism,sem er samvinnuverkefni safnsins og fimm myndlistarkvenna: Önnu Líndal, Guðrúnar Gunnarsdóttur, Hildar Bjarnadóttur, Hrafnhildar Arnardóttur og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.   Á sýningunni er að finna fimm innsetningar úr blönduðum efnum, mjúkum efnum, aðskotahlutum, ljósmyndum, plastefnum, myndböndum o.fl. Í verki Önnu Líndal eru „viðgerðin" og hugmyndir henni tengdar í aðalhlutverki. Um verkið segir Anna: „Viðgerðin er áþreifanleg heimild um samskipti einstaklings við hlut úr umhverfi sínu. Þetta eru persónuleg samskipti sem mótast á mismunandi hátt hjá þjóðum." Guðrún Gunnarsdóttir sýnir veggmynd sem snýst um þær fiskitegundir sem veiðast úti fyrir Reykjanesi. Hún segir: „Fiskiveiðar eru oftast tengdar karlmönnum, en mig langaði til að tengja fiskinn við hið kvenlega, svo sem útsaum, léttleika." Hildur Bjarnadóttir gerir tvíþætt verk, annars vegar innsetningu sem hverfist um spunavél frá gamla Bændaskólanum í Ólafsdal, hins vegar smærri innsetningu um íslenskan rokk frá Brennistöðum og köttinn Dúsu sem er heimilisföst í húsakynnum Listasafns Reykjanesbæjar. Framlag Hrafnhildar Arnardóttur er innsetning úr plasti og mjúkum gerviefnum sem er eins konar tilbrigði við eldgos og hraunrennsli. Innsetning Rósu Sigrúnar Jónsdóttur heitir Lífgrös, og er margbrotin hugleiðing um hamingjuna og íslensk grös
21. apríl 2010
Listahátíð barna 2010Listahátíð barna sem nú verður haldin hátíðleg í 5. sinn er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra 10 leikskóla Reykjanesbæjar. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafi orðið kveikjan að þeirri stóru barnahátíð sem nú verður haldin í Reykjanesbæ þar sem virðing fyrir börnum og störfum þeirra og þörfum er höfð að leiðarljósi.   Yfirskrift listahátíðar barna árið 2010 er Hafið og á öllum leikskólum hafa börnin fræðst um hafið með margvíslegum hætti. Alls kyns listaverk hafa litið dagsins ljós, æfðir hafa verið nýir söngvar um fiska og haf, sjávardýr hafa verið krufin og svona mætti lengi telja. Hápunkturinn er sjálf listahátíðin sem sett verður með formlegum hætti í Duushúsum síðasta vetrardag, miðvikudaginn 21. apríl kl. 10.30. Það er vel við hæfi að sá viðburður verður einnig upphafsatriði Barnahátíðar í Reykjanesbæ.   Á listahátíðinni verður leitast við að skapa neðansjávarheim í Listasal með öllum þeim undrum sem þar finnast. Listasmiðja verður starfrækt í Bíósal sem stendur öllum bæjarbúum opin og þar verða einnig myndlistarverk frá öllum leikskólunum. Dagana 23. - 30. apríl koma leikskólarnir í heimsókn og standa fyrir stuttri skemmtidagskrá sem er öllum opin.   Sérstakir viðburðir tengdir hátíðinni verða tveir. Heimsókn Svabba sjóara sem fræðir börnin um íslensk vatnaskrímsli í Bíósal, laugardaginn 24. apríl kl. 14.00 og 15.00. Sama dag verður einnig sýning á nýveiddum sjávardýrum til sýnis á smábátahöfninni frá kl. 11.00 - 17.00.   Sýningin stendur frá 21. apríl til 2. maí og listasmiðjan verður starfrækt allan tímann. Opið virka daga frá kl. 11.00 - 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 - 17.00 (Laugardaginn 24. apríl opnar kl. 11.00) Ókeypis aðgangur.   Myndir frá Listahátíð barna 2010   Skemmtidagskrá leikskólanna Föstudagur 23. apríl10.00 Háaleiti  Mánudagur 26. apríl13.30 Hjallatún Þriðjudagur 27. apríl10.30 Gimli13.30 Garðasel Miðvikudagur 28. apríl10.30 Akur13.30 Heiðarsel Fimmtudagur 29. apríl10.30 Tjarnarsel13.30 Holt Föstudagur 30. apríl10.30 Völlur13.30 Vesturberg  
spegilsýnirUm helgina lýkur ljósmyndasýningunni Spegilsýnir sem er tilraun til að ögra 6 valinkunnum ljósmyndurum til að gerast „speglamenn" þ.e. að nota ljósmyndina til tjáningar á einkalegum viðhorfum, að virkja hið hlutlæga til að draga fram hið huglæga í stað þess að nota hana eingöngu til hlutlausrar frásagnar af hinu séða líkt og „gluggamenn." Þau Bára Kristinsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla Ágústsdóttir spreyttu sig á verkinu og afraksturinn er stórskemmtilegur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum, Duusgötu 2 - 8. Þar er opið frá 11.00 - 17.00 virka daga og 13.00 - 17.00 um helgar og aðgangur er ókeypis.
Spegilsýnir mynd2Einar Falur Ingólfsson veitir leiðsögn um ljósmyndasýninguna Spegilsýnir laugardaginn 13. mars kl. 14:00. Listamennirnir Bára Kristinsdóttir , Einar Falur Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla Ágústsdóttir eiga verk á sýningunni og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.   John Szarkowski, yfirmaður ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsti sérfræðingur í bandarískri ljósmyndun setti fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun árið 1978 þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka, þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á einkalegum viðhorfum, sem sagt speglamenn, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. gluggamenn. Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar er tilraun til að ögra nokkrum valinkunnum ljósmyndurum, fá þá til að takast sérstaklega á við spegilhugmyndina sem hér er nefnd.   Leiðsögnin er liður í Safnahelgi á Suðurnesjum sem stendur þessa helgi, sjá safnahelgi.is.
SpegilsýnirLjósmyndasýningin Spegilsýnir verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 5. mars kl. 18.00. Listamennirnir Bára Kristinsdóttir , Einar Falur Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla Ágústsdóttir eiga verk á sýningunni og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.John Szarkowski, yfirmaður ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsti sérfræðingur í bandarískri ljósmyndun setti fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun árið 1978 þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka, þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á einkalegum viðhorfum, sem sagt speglamenn, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. gluggamenn. Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar er tilraun til að ögra nokkrum valinkunnum ljósmyndurum, fá þá til að takast sérstaklega á við spegilhugmyndina sem hér er nefnd. Sumir þeirra hafa alltaf verið spegilmenn, aðrir eru gluggasérfræðingar, en flestir hafa þeir farið bil beggja í ljósmyndum sínum, reynt að virkja hið hlutlæga til að draga fram hið huglæga.
22. febrúar 2010
björn birnir leiðsögnÁ sunnudag lýkur sýningu Björns Birnir í listasal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Af því tilefni verður listamaðurinn á staðnum kl. 14:00 og leiðir gesti um hinar „Afleiddu ómælisvíddir" sýningarinnar þar sem mestmegnis gefur að líta óhlutbundin akrílverk innblásin af árstíðunum. Þótt Björn Birnir hafi ekki verið áberandi í sýningarhaldi á ferli sínum hefur hann lagt stund á myndlist í meira en hálfa öld og er listunnendum vel kunnur. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur segir um verk Björns að hann sé eini íslenski listamaðurinn sem byggt hefur verk sín á sandi í bókstaflegri merkingu. Þar vísar hann til þess að verk Björns einkennast gjarnan af víðerni, láréttum flötum sem teygja sig eftir endilöngum dúkum hans, án þess mótvægis lóðréttra dranga eða skáhallandi fjalla sem íslenskir áhorfendur reiða sig gjarnan á. Allir velkomnir og heitt á könnunni.   Nánari umfjöllun um sýninguna má sjá undir flipanum sýningar hér til vinstri á síðunni.
Eggert Guðmundsson sjálfsmyndFrásagnir og spjall í í tengslum við sýningu á verkum Eggerts Guðmundssonar "Verk í eigu bæjarbúa" fór fram sunnudaginn 27. september í Bíósal. Erindi fluttu Björn Stefánsson sem sagði frá kynnum sínum af Eggerti og sýningarhaldi því tengdu, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Thor B. Eggertsson sonur listamannsins og Guðlaug María Lewis fræðslufulltrúi Listasafns Reykjanesbæjar. Hægt er að hlýða á þessar upptökur með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Einnig er hægt að finna upptökuna með því að smella á sýningar 2009 þar sem finna má meira efni um sýninguna.   Hljóðupptaka frá málstofu um Eggert Guðmundsson
Listahátíð barnaÞann 21. apríl verður Listahátíð barna sett í Duushúsum í 5. sinn með þátttöku allra 10 leikskólanna í Reykjanesbæ. yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni verður HAFIÐ. Nú þegar er undirbúningur hafinn í leikskólunum og verður spennandi að sjá Duushúsin breytast í haf á síðasta vetrardag. Því til viðbótar standa leikskólarnir hver fyrir sinni skemmtidagskrá tivsvar á dag á meðan á hátíðinni stendur auk þess sem gestir og gangandi geta tekið þátt í listasmiðju. Listahátíðin stendur til 2. maí og eru allir boðnir velkomnir að líta við til að skoða töfra hafsins. Nú er hafin vinna við ferliverkið en það er stór blindrammi sem flakkar á milli leikskólanna og allir vinna á undir yfirskriftinni Hafið.   Hér má sjá myndir af vinnu við ferliverkið  
Börn frá HeiðarseliHópur barna af Bakka á leikskólanum Heiðarseli komu í heimsókn í morgun til að skoða sýningu Björns Birnir, Afleiddar ómælisvíddir, en skólabörn bæjarins eru tíðir gestir á sýningum listasafnsins. Í hópnum fóru fram fjörugar umræður um árstíðir, börnin skoðuðu myndir af ýmsum listaverkum og tengdu þau við ákveðnar árstíðir. Einnig hlustuðu þau á ljóðaupplestur og völdu myndir á sýningunni sem pössuðu við ljóðin.  Þá teiknuðu þau sínar eigin árstíðamyndir undir áhrifum af myndum Björns. Að lokum sungu börnin tvö árstíðalög fyrir safnkennarann af stakri prýði. Myndir frá heimsókninni
Björn Birnir myndLaugardaginn 16. janúar kl. 15.00 verður opnuð sýning á verkum listmálarans Björns Birnir í Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni sem ber yfirskriftina Afleiddar ómælisvíddir gefur mestmegnis að líta óhlutbundin akrílverk innblásin af árstíðunum. Björn Birnir hefur ekki verið áberandi í sýningarhaldi á ferli sínum en hefur þó lagt stund á myndlist í meira en hálfa öld og lengst af unnið að listinni samhliða öðrum störfum s.s. kennslu og stjórnun við málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur segir um verk Björns að hann sé eini íslenski listamaðurinn sem byggt hefur verk sín á sandi í bókstaflegri merkingu. Þar vísar hann til þess að verk Björns einkennast gjarnan af víðerni, láréttum flötum sem teygja sig eftir endilöngum dúkum hans, án þess mótvægis lóðréttra dranga eða skáhallandi fjalla sem íslenskir áhorfendur reiða sig gjarnan á. Sýningin er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og stendur til 28. febrúar. Þar er opið virka daga frá kl. 11.00 - 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 - 17.00 og aðgangur er ókeypis.
Flökkuæðar - LoftfarSýning Ingu Þóreyjar Jóhannesdóttur Flökkuæðar - Loftfar í Listasafni Reykjanesbæjar hefur verið valin ein af bestu myndlistarsýningum ársins 2009 af gagnrýnendum og blaðamönnum Morgunblaðsins. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um sýninguna: Eftirminnileg sýning þar sem sjá mátti "listvísindalegan þverskurð" af tilbúnum flugminjum með tækni þar sem skúlptúr og málverk blandast saman í vel heppnaða innsetningu. Á sýningunni ríkti tilfinning fyrir háska og björgun um leið og hún vísaði bæði fram og aftur í tímaskynið". Einnig segir: "sýningin fór hljótt sakir þess að vera heila 50 kílómetra frá Reykjavík, en tvímælalaust ein sú besta á árinu". Sýningin var haldin 4. september til 18. október sl. og var efniviður Ingu Þóreyjar farangur og farartæki. Á sýningunni leitaði hún að svæðinu milil svefns og vöku, þess augljósa og þess sem er óaðgengilegt. Sýningin samanstóð af þrívíðum málverkum, máluðum skúlptúrum og hljóð- og ljósaverki sem stillt var upp þannig að úr varð nokkrs konar umferðarmiðstöð
innistæða síðasta sýningarhelgiLaugardaginn 12. desember kl. 13.30 verður Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og sýningarstjóri sýningarinnar með leiðsögn í Listasal Duushúsa. Á sýningunni eru 30 verk úr eigu Landsbankans frá tímabilinu 1900 - 1990. Því má segja að verkin á sýningunni spanni sögu íslenskrar myndlistar. Þessi helgi er jafnframt síðasta sýningarhelgi. Allir velkomnir og heitt á könnunni. 
20. október 2009
innistæða myndSýningin Innistæða, verk í eigu Landsbankans, verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 23. október kl. 18.00. Á sýningunni má sjá 30 málverk frá tímabilinu 1900-1990 eftir ýmsa helstu listamenn þjóðarinnar og tilraun gerð til að rekja íslenska listasögu með hjálp þessara verka. Sýningin hefur verið í undirbúningi í tvö ár og var alltaf hugsuð sem sérstök skólasýning en Listasafn Reykjanesbæjar er eina listasafnið á Suðurnesjum og hefur þar af leiðandi ýmsum skyldum að gegna auk hefðbundinnar safnastarfsemi. Í stofnskrá safnsins er t.d. mikið gert úr menntunarhlutverki safnsins og sérstaklega tekið fram að því sé ætlað að efla þekkingu og áhuga á myndlist. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Sjá nánar undir Sýningar 2009
Flökkuæðar loftfar, síðasta sýningarhelgiSýning Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur "Flökkuæðar - Loftfar" / "Vessels" opnaði í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 4. september s.l. og lýkur nú á sunnduaginn 18. október. Opið virka daga 11.00-17.00 og 13.00-17.00 um helgar.Farangur og farartæki er helsti efniviður Ingu Þóreyjar sem í verkum sínum leitar að svæðinu milli svefns og vöku, þess augljósa og þess sem er óaðgengilegt. Sýningin samanstendur af þrívíðum málverkum, máluðum skúlptúrum, hljóð- og ljósaverki sem stillt er upp þannig að úr verður nokkurs konar umferðarmiðstöð. Á liðnum vetri skoðaði Inga Þórey fegurðina í farartækjum sem aldrei hafa haft öðru hlutverki að gegna en að vera staðir í sjálfu sér. Ímyndunaraflið er þá hugsað sem helsti orkugjafinn til að koma þessum vélarlausu fyrirbærum á skrið, sem tæki til að koma sér á milli ákvörðunarstaða, til að flýja með, fela sig í, og á bak við eða jafnvel sem verkfæri. Fyrir utan að búa til farartæki hefur Inga Þórey litið á verknaðinn að hylja og afhjúpa sem óhjákvæmilegt athæfi fyrir sýninguna. Mesta feluleikinn má finna í farangrinum sem á sýningunni verður en úr honum hafa verið valdir sérstakir kaflar til að afhjúpa og deila með öðrum.Aðferðir sem notaðar eru við gerð verkanna felast í að því að þjappa, kremja, strekkja, sleppa lausu, pakka, mála og skera og notar listamaðurinn efni af ýmsu tagi, t.a.m. striga, svamp, málningu, gúmmíkvoðu, gler og steypu svo fátt eitt sé nefnt. Velkomin, ókeypis aðgangur.
Inga ÞóreySunnudaginn 11. október mun myndlistarmaðurinn Inga Þórey Jóhannsdóttir leiða gesti um sýningu sína í Listasal Duushúsa. Leiðsögnin hefst strax að loknum fyrirlestri Einars Garibaldi um samtímalist í Bíósal sem hefst kl. 15.00. Sýning Ingu Þóreyjar, Flökkuæðar - Loftfar var opnuð á Ljósanótt 4. sept. s.l. og stendur til 18. október. Þetta er því næst síðasta sýningarhelgi.
Í nafni listarinnar, Einar GaribaldiÍmyndum okkur að við stöndum frammi fyrir tveimur hlutum sem líta nákvæmlega eins út. Aðeins annar þeirra er listaverk, en þó líta þeir eins út. Hvernig förum við þá að því að greina muninn? Til að velta vöngum yfir þessari spurningu og ýmsum fleiri er varðað hafa umræðuna um réttlætingu listarinnar á síðustu áratugum, mun myndlistarmaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson halda fyrirlestur í Bíósal Duushúsa sunnudaginn 11. október kl. 15.00. Allir velkomnir og heitt á könnunni.
Listaskólinn logoListaskólinn sem staðið hefur fyrir sumarnámskeiðum fyrir börn frá árinu 2004 býður nú upp á vetrarstarf. Að þessu sinni er boðið upp á 7 vikna myndlistarnámskeið, Undur og gersemar, fyrir 8 - 12 ára börn. Námskeiðið verður haldið í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2, á laugardögum frá kl. 11.00 - 13.00. Það hefst 3. október og stendur til 14. nóvember.   Það hefur ávallt verið stefna skólans að bjóða upp á fagmenntaða leiðbeinendur og á því verður engin breyting. Kennari á þessu námskeiði verður Inga Þórey Jóhannsdóttir myndlistarmaður. Hún hefur sinnt myndlistarkennslu, á sæti í Listráði Reykjanesbæjar og hefur umsjón með sýningarrýminu Suðsuðvestur.   Skráning á námskeiðið fer fram á listaskolinn@reykjanesbaer.is eða í síma 898-1202. Námskeiðsgjald er kr. 12.000 og er allt efni innifalið í því. Hægt er að nýta hvatagreiðslur við greiðslu á námskeiðsgjaldi.   Undur og gersemar   Á námskeiðinu verður teiknað, málað og mótað. Gerðar verða tilraunir; leikið og lært um grundavallaratriði sjónlista í tvívídd og þrívídd; form, litur ljós og skuggi. Markmið námskeiðsins er að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu, jafnframt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir formi og efni. Leitast við að kveikja áhuga á myndgerð og formhugsun í víðara samhengi, m.a. gegnum listasögu.
Eggert Guðmundsson myndFrásagnir og spjall í í tengslum við sýningu á verkum Eggerts Guðmundssonar "Verk í eigu bæjarbúa" fer fram sunnudaginn 27. september kl. 15.00 í Bíósal. Erindi flytja Björn Stefánsson sem segir frá kynnum sínum af Eggerti og sýningarhaldi því tengdu, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Thor B. Eggertsson sonur listamannsins og Guðlaug María Lewis fræðslufulltrúi Listasafns Reykjanesbæjar. Þess má geta að þessi helgi er jafnframt síðasta sýningarhelgi sýningarinnar.Allir eru hjartanlega velkomnir og heitt verður á könnunni.
Eggert Guðmundsson myndÁ Ljósanótt verður opnuð sýning á verkum Eggerts Guðmundssonar listmálara í Bíósal Duushúsa. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt að efnisvali; olíuverk, teikningar o.fl. en verkin eiga það sammerkt að flest þeirra eru í eigu bæjarbúa sjálfra. Fjölskylda Eggerts lánaði líka nokkur verk og einnig hafa bæði Listasafn Íslands og Listasafn Reykjanesbæjar lánað verk. Sýningin er ekki eiginleg yfirlitssýning en sýnir gott úrval verka hans. Eggert Guðmundsson var fæddur í Stapakoti í Innri-Njarðvík, árið 1906. Hann hóf ungur listnám og lærði m.a. hjá Stefáni Eiríkssyni, Einari Jónssyni myndhöggvara og Ríkharði Jónssyni en haustið 1927 hélt hann út til frekara náms og dvaldi í München í Þýzkalandi í þrjú ár og eitt ár var hann við nám á Íalíu. Dvaldi hann síðan erlendis að mestu til ársins 1940 en flutti þá heim til Íslands. Eggert var vinsæll málari og hélt fjölda sýninga bæði hér á Íslandi og erlendis. Sýningin í Duushúsum mun standa til 27. september.  
LoftfarInga Þórey Jóhannsdóttir opnar sýninguna "Flökkuæðar - Loftfar" / "Vessels" í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 4. september kl.18.00. Farangur og farartæki er helsti efniviður Ingu Þóreyjar sem í verkum sínum leitar að svæðinu milli svefns og vöku, þess augljósa og þess sem er óaðgengilegt. Sýningin samanstendur af þrívíðum málverkum, máluðum skúlptúrum, hljóð- og ljósaverki sem stillt er upp þannig að úr verður nokkurs konar umferðarmiðstöð.  Á liðnum vetri hefur Inga Þórey skoðað fegurðina í farartækjum sem aldrei hafa haft öðru hlutverki að gegna en að vera staðir í sjálfu sér. Ímyndunaraflið er þá hugsað sem helsti orkugjafinn til að koma þessum vélarlausu fyrirbærum á skrið, sem tæki til að koma sér á milli ákvörðunarstaða, til að flýja með, fela sig í, og á bak við eða jafnvel sem verkfæri. Fyrir utan að búa til farartæki hefur Inga Þórey litið á verknaðinn að hylja og afhjúpa sem óhjákvæmilegt athæfi fyrir sýninguna. Mesta feluleikinn má finna í farangrinum sem á sýningunni verður en úr honum hafa verið valdir sérstakir kaflar til að afhjúpa og deila með öðrum. Aðferðir sem notaðar eru við gerð verkanna felast í að því að þjappa, kremja, strekkja, sleppa lausu, pakka, mála og skera og notar listamaðurinn efni af ýmsu tagi, t.a.m. striga, svamp, málningu, gúmmíkvoðu, gler og steypu svo fátt eitt sé nefnt.  Sýningin stendur til 18.október og er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Opið virka daga frá kl. 11.00-17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00.          
Í húsi sársaukans, frá sýninguSýningu Olgu Bergmann í Listasafni Reykjanesbæjar sem staðið hefur frá því í maí lýkur um komandi helgi. Olga verður sjálf á staðnum á laugardaginn 8. ágúst frá kl. 15 - 17 með heitt á könnunni og býður upp á óformlegt spjall um sýninguna við gesti og gangandi.Olga hefur farið fremur óhefðbundnar leiðir í listsköpun sinni en nýtur virðingar fyrir áleitin og vönduð verk. Á sýningunni, sem er dagskrárliður á Listahátíð í Reykjavík, er stefnt saman myndbandsverkum, skúlptúrum og fundnum hlutum. Reynt er að skyggnast á bak við þær hugrenningar og tilfinningar sem skapast við missi, áföll eða umbyltingu aðstæðna og leitast við að leiða í ljós hvað sú togstreita sem af slíku hlýst hefur í för með sér svo sem stöðnun eða nýtt upphaf. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum er opinn virka daga frá kl. 11.00 til kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00 og aðgangur er ókeypis.
Olga Bergmann  Sunnudaginn 14. júní kl. 14.00 verður Olga Bergmann með leiðsögn um sýningu sína, Í húsi sársaukans, í Listasal Duushúsa. Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu, þriðjudaginn 9. júní sl, segir Olga verkin tengjast persónulegu áfalli en einnig því áfalli sem þjóðin varð fyrir í haust. Hún segir m.a: „Það má spyrja hvort hús sársaukans sé innan heilans, hvort samfélagið sé nú um stundir heimili sársaukans, eða hvort það er sjálf sýningin." Hún heldur áfram og segir: „Ég er ekki vön því að vera svona persónuleg í sýningum, en verkin eru unnin í sorgarferli. Sýningin er ekki síst tileinkuð mömmu. Sorgin getur verið lamandi en getur líka veitt innblástur." Allir velkomnir!
Olga Bergmann - mynd Listasafn Reykjanesbæjar tekur nú þátt í Listahátíð í Reykjavík í annað sinn með opnun sýningar Olgu Bergmann laugardaginn 16. maí kl. 17.00. Olga hefur farið fremur óhefðbundnar leiðir í listsköpun sinni en nýtur virðingar fyrir áleitin og vönduð verk. Sýningin ber heitið Í húsi sársaukans eða House of Pain þar sem stefnt er saman myndbandsverkum, skúlptúrum og fundnum hlutum. Reynt er að skyggnast á bak við þær hugrenningar og tilfinningar sem skapast við missi, áföll eða umbyltingu aðstæðna og leitast við að leiða í ljós hvað sú togstreita sem af slíku hlýst hefur í för með sér svo sem stöðnun eða nýtt upphaf. Sýningin er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og stendur til 17. ágúst. Þar er opið virka daga frá kl. 11.00 - 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 - 17.00 og aðgangur er ókeypis.  
Listahátíð barna 09Listasafn Reykjanesbæjar hefur í samvinnu við alla 10 leikskóla bæjarins unnið að sérstakri listahátíð barna sem opnuð verður í Duushúsum fimmtudaginn 30. apríl kl. 10.30. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er VINÁTTA og eru öll verkin tengd henni.  Listahátíð barna er nú haldin í þriðja sinn og hefur farið stækkandi með hverju árinu.  Í ár þurfti t.d. að leggja alla sali Duushúsanna ásamt Frumleikhúsinu undir hátíðina, svo mikill er sköpunarkraftur barnanna í bænum. Listasmiðjan Vinaland verður starfrækt í Bíósal þar sem íbúum bæjarins  gefst kostur á að skapa heilt samfélag úr leirfígúrum.  Smiðjan verður opin alla hátíðina og foreldrum bent á að opið verður um helgina frá kl. 13 – 17. Vikuna 4. – 8. maí standa leikskólarnir svo fyrir skemmtidagskrá  í Duushúsum tvisvar á dag kl. 10.30 og 13.30 þangað sem allir eru velkomnir.  Nánari upplýsingar um þær uppákomur má sjá hér að neðan og hjá viðkomandi leikskóla. Listahátíð barna stendur til föstudagsins 8. maí og er öllum opin. Nánari upplýsingar gefur Guðlaug María Lewis  í síma 8634989 eða gudlaug.m.lewis@reykjaensbaer.is Skemmtidagskrá leikskólanna er í Duushúsum á eftirtöldum tímum: Mánudagur 4. maí 10.30     Vesturberg 13.30     Völlur   Þriðjudagur 5. maí 10.30     Holt 13.30     Heiðarsel   Miðvikudagur 6. maí 10.30     Tjarnarsel 13.30     Akur   Fimmtudagur 7. maí 10.30     Garðasel 13.30     Gimli   Föstudagur 8. maí 10.30     Hjallatún 13.30Háaleiti  
List án landamæra Reykjanesbær og nágrannasveitarfélög taka nú í fyrsta sinn þátt í hátíðinni List án landamæra þar sem fatlaðir og ófatlaðir vinna saman að ýmsum listtengdum verkefnum. Hátíðin verður sett með formlegum hætti á sumardaginn fyrsta, 23. apríl í Frumleikhúsinu og Bíósal Duushúsa og stendur öllum opin. Frumleikhúsið, Vesturbraut 17, kl. 13.00. Sett verður á svið sýningin Sumardagurinn fyrsti sem er samsett dagskrá með leik, söng og dansi. Um leikstjórn sér Kristlaug María Sigurðardóttir. Duushús, Bíósalur, kl. 14.00. Glerborgir. Samsýning listafólks undir stjórn myndlistarmannsins Guðmundar R. Lúðvíkssonar. Sýningin stendur til sunnudagsins 26. apríl og er opin frá kl. 13.00-17.00. Þennan sama dag kl. 15.00 verður Hulda Vilhjálmsdóttir með leiðsögn fyrir almenning um sýningu sína, Það sem gerðist, í Listasal.  
Söfn og sjávarfang - myndSöfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á sameiginlega dagskrá helgina 14. - 15. mars n.k. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni. Sameiginlegt þema helgarinnar er Söfn og sjávarfang á Suðurnesjum og til þess að auka fjölbreytni í dagskránni bjóða mörg veitingahús á svæðinu upp á matseðil með sjávarfangi. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis. Á laugardaginn kl. 14.00 verður Hulda Vilhjálmsdóttir með leiðsögn fyrir almenning um sýningu sína, Það sem gerðist, í Listasal. Sama dag kl. 15.00 verða Ragnheiður Gröndal og hljómsveit með tónleika í Bíósal. Á sunnudag kl. 14.00 verða tónleikar með Einari Júlíussyni og hljómsveit í Poppminjasafni og kl. 15.00 verður Bryggjuball í Bíósal þar sem Félag harmonikkuunnenda leikur fyrir dansi. Sjá dagskrá
Hulda Vilhjálmsdóttir - opnun - mynd Sýningin „Það sem gerðist" opnar í Listasafni Reykjanesbæjar  Föstudaginn 13. mars kl. 18.00 verður opnuð sýning á nýjum verkum Huldu Vilhjálmsdóttur í Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Það sem gerðist. Verkin sem Hulda sýnir að þessu sinni eru fjölbreytt bæði að efnisvali og útliti eins og segir í texta sýningarstjórans, Aðalsteins Ingólfssonar í sýningarskránni: "Nú eru menn ekki settir út af sakramentinu fyrir ónóga fylgispekt við tiltekna hugmyndafræði, heldur sannar sig sérhver listamaður á eigin forsendum. Það hefur Hulda tvímælalaust gert, og af svo miklu örlæti að áhorfandinn á fullt í fangi með að fylgja henni eftir, gegnum völundarhús teikninga, málverk á striga, pappa, plast og tré, málaða aðskotahluti, litaða leirskúlptúra, frístandandi málverk, fljúgandi málverk, málverk með textum, frjálsa texta o.s.frv."  Sýningin er á dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum sem sett verður við sama tækifæri.  Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum er opinn virka daga frá kl. 11.00 til kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00. Sýningin stendur til 26.apríl og aðgangur er ókeypis.  Nánari upplýsingar gefa:   Hulda Vilhjálmsdóttir:Sími 846-8746 Aðalsteinn Ingólfsson: Sími 898-8466       Myndir frá opnun sýningarinnar
Eyjólfur - síðasta sýningarhelgi - myndSýningu Eyjólfs Einarssonar í Listasafni Reykjanesbæjar lýkur sunnudaginn 8. mars. Á sýningunni, sem ber heitið Söknuður, gefur að líta 14 olíumálverk eftir Eyjólf. Hann hefur í tæpa hálfa öld sýnt verk sín víða bæði hér á landi og erlendis og er löngu orðinn þekktur fyrir skemmtilega túlkun sína á líkingunni um hringekjuna og Parísarhjólið sem hringrás og fallvaltleika lífsins. Hægt verður að hitta á Eyjólf sjálfan á sýningunni á laugardag frá kl. 15.00.
Laugardaginn 21. febrúar kl. 13.30 mun Eyjólfur Einarsson listmálari verða með leiðsögn fyrir almenning um sýningu sína, Söknuður, sem nú stendur í Listasal Duushúsa.  Nánari umfjöllun um sýninguna má finna á stikunni hér til vinstri undir flipanum sýningar/sýningar 2009.  
Eyjólfur Einarsson - opnun myndLaugardaginn 24. janúar kl. 18.00 verður opnuð sýning á nýjum málverkum Eyjólfs Einarssonar og ber sýningin heitið Söknuður/Wistfulness.  Eyjólfur ákvað ungur að helga sig myndlistinni og innan við fermingu var hann farinn að sækja námskeið hjá Ásmundi Sveinssyni.  Eftir nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands hélt hann til Danmerkur og útskrifaðist árið 1966 frá Den Kongelige danske Kunstakademi.    Eyjólfur hefur í tæpa hálfa öld sýnt verk sín víða bæði hér á landi og erlendis og er löngu orðinn þekktur fyrir skemmtilega túlkun sína á líkingunni um hringekjuna og Parísarhjólið sem hringrás og fallvaltleika lífsins.  Aðalsteinn Ingólfsson segir í sýningarskrá sem gefin er út af þessu tilefni: „Af málverkum Eyjólfs stafa söknuður og tregi: eftirsjá eftir sakleysi bernskunnar þegar hringekjur voru lífsins mesta undur og róluvellir helsta leiðin til stjarnanna, eftirsjá eftir barnatrúnni á „undursamleikans eigin þrotlausa brunn“, eftirsjá eftir þeim gildum sem ekki hafa „drukknað í æði múgsins og glaumsins“.”   Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum er opinn virka daga frá kl. 11.00 til kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00. Sýningin stendur til 8. mars og aðgangur er ókeypis. 
Þríviður Sýningin Þríviður í Listasafni Reykjanesbæjar var valin ein af bestu myndlistarsýningum ársins að mati gagnrýnenda og blaðamanna Morgunblaðsins.Þríviður var hluti af Listahátíð í Reykjavík sl. vor en þar sýndu listamennirnir Guðjón Ketilsson, Hannes Lárusson og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Sýningarstjóri var Aðalsteinn Ingólfsson. Í umsögn Morgunblaðsins um sýninguna segir: Hlutir og hugtök og athafnir eru merkingarhlaðin og áhorfandinn nær að upplifa sig í samræðu við verkin frekar en að vera sjálfur ábyrgur fyrir mögulegu inntaki þeirra.  
Arngunnur Ýr - síðasta sýningarhelgiSýningu Arngunnar Ýrar lýkur sunnudaginn 7. desember n.k.  Á sýningunni, sem ber heitið Upphafið, má sjá ný olíuverk eftir Arngunni.  Í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur um verkin: „ Í seinni tíð hafa málverk Arngunnar Ýrar fengið á sig æ frumspekilegra yfirbragð. Þær sýna landslag sem er í mótun og upplausn í senn og vekur því með okkur tilfinningar sem sveiflast á milli aðdáunar á þeirri endurnýjun sem stöðugt á sér stað í skauti náttúrunnar og ótta yfir eyðingarmætti hennar.”  Sýningin hefur hlotið mikið lof og fjöldi gesta lagt ferð sína í Listasalinn í Duushúsum.
22. október 2008
Fimmtudaginn 23. október verður opnuð sýning á nýjum verkum Arngunnar Ýrar í Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Upphafið. Arngunnur Ýr stundaði nám í  Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk prófum frá San Francisco Art Institute og Mills College í Bandaríkjunum. Arngunnur hefur sýnt víða og er löngu orðin þekkt fyrir sínar „himnesku“ náttúrumyndir.  Aðalsteinn Ingólfsson segir í sýningarskrá sem gefin er út af þessu tilefni: „ Í seinni tíð hafa málverk Arngunnar Ýrar fengið á sig æ frumspekilegra yfirbragð. Þær sýna landslag sem er í mótun og upplausn í senn og vekur því með okkur tilfinningar sem sveiflast á milli aðdáunar á þeirri endurnýjun sem stöðugt á sér stað í skauti náttúrunnar og ótta yfir eyðingarmætti hennar.”  Sýningin stendur til 7. desember.   Sýningarsalur Listasafnsins er opinn alla daga frá kl. 11.00 til kl. 17.00 og þar er ókeypis aðgangur. 
Ilmur Stefánsd. myndir frá opnun2Nú fer hver að verða síðastur til að sjá og njóta þessarar bráðskemmtilegu sýningar sem staðið hefur í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum frá því á Ljósanótt. Fjölmargir gestir hafa lagt leið sína í Listasafnið og upplifað sýningu Ilmar Stefánsdóttur því nú má snerta og prófa! Titill sýningarinnar á einstaklega vel við því gestir komast ekki hjá því að leika sér, hlægja og hafa gaman og á það jafnt við um börn sem fullorðna. Mörg skólabörn bæjarins hafa átt góðar stundir á sýningunni og fullvíst er að þau vilja koma aftur í fylgd mömmu og pabba og upplifa með þeim töfra myndlistarinnar í sinni skemmtilegustu mynd.
Ilmur Stefánsdóttir - FjölleikarLaugardaginn 27. september var Ilmur Stefánsdóttir með leiðsögn fyrir almenning í listasafninu um sýningu sína Fjölleikar. Um 50 konur ofan af Skaga gerðu sér glaðan dag í Reykjanesbæ og nutu leiðsagnar Ilmar. "Af ánægju út að eyrum hver einasta kerling hló" segir einhvers staðar í dægurlagi um konur af Akranesi og það átti svo sannarlega við að þessu sinni enda um einstaklega skemmtilega og lifandi sýningu að ræða. Sýningin stendur til 19. október. Opnunartími safnsins er frá kl. 11.00 - 17.00 alla daga og aðgangur er ókeypis.
FjölleikarFöstudaginn 5. september opnar sýning á verkum Ilmar Stefánsdóttur myndlistarkonu í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin ber heitið Fjölleikar og þar gefst gestum kostur á  skemmtilegum dýfum og jafnvægiskúnstum í  hljómfalli rokkandi rokka og syngjandi vefstóla. Með sýningunni breytir Ilmur svipmóti myndlistarinnar í „artentainment“ þar sem fagurlistir og skemmtanaiðnaður mætast. Sýningin er á dagskrá Ljósanætur, menningar- og fölskylduhátíðar Reykjanesbæjar. Sýningin er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og  stendur til 19. október.  Í Duushúsum er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00 og aðgangur er ókeypis.
Listasafn Reykjanesbæjar tók í sumar þátt í Listahátíð í Reykjavík í fyrsta sinn með samsýningunni Þríviður. Þar leiða saman hesta sína listamennirnir Hannes Lárusson, Guðjón Ketilsson og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson sem hafa þá sérstöðu á vettvangi samtímalistar að nota trjávið í ríkum mæli við gerð verka sinna. Meðhöndlun þeirra á efniviðnum er hins vegar ólík þótt áherslur þeirra beri keim af hugmyndalist og félagslega meðvitaðri list síðari ára. Á sýningunni er grennslast fyrir um hlutverk trjáviðar í íslenskri myndlist og tengslin við útskurðarlist fortíðar. Sýningin hlaut fádæma góða dóma í myndlistargagnrýni Morgunblaðsins þar sem framlag Listasafns Reykjanesbæjar var talið með því besta sem Listahátíð í Reykjavík 2008 bauð upp á. Laugardaginn 16. ágúst kl. 14.30 munu myndlistarmennirnir verða með leiðsögn fyrir almenning um sýninguna í Listasal Duushúsa. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum. Þar er opið alla daga frá kl. 11.00 – 17.00 og aðgangur er ókeypis. Sýningin Þríviður stendur til 17. ágúst.
Listahátíð barna 2008Listasafn Reykjanesbæjar hefur í samvinnu við 6 leikskóla  í bænum unnið að sérstakri Listahátíð barna sem haldin verður í Duushúsum næstu daga í tilefni Degi barnsins sem haldinn er hátíðlegur 25. maí á hverju ári. Hátíðin opnar formlega föstudaginn 16. maí kl. 10.30 með því að bæjarstjóri opnar listsýningu í Bíósal Duushúsa þar sem sjá má myndlistarverk eftir elstu árganga Heiðarsels, Holts, Garðasels, Tjarnasels, Vesturbergs og Hjallatúns og eru þessi verk unnin sérstaklega fyrir þetta tækifæri og ber sýningin heitið Börn.  Á sýningunni má einnig lesa um væntingar barnanna til framtíðarinnar.  Mánudag, þriðjudag og miðvikudag verða svo skipulagðar uppákomur fyrir og eftir hádegi með leik og söng í umsjá ofantaldra leikskóla og er öllum heimilt að koma og skemmta sér á meðan húsrúm leyfir.  Uppákomurnar verða kl. 10.30 og 13.30 og fara fram í Gryfjunni í Duushúsum.  Myndlistarsýningin í Bíósal er opin alla daga frá kl. 11.00-17.00 og stendur til 26. maí.
ÞríviðurListasafn Reykjanesbæjar tekur nú í fyrsta sinn þátt í Listahátíð í Reykjavík. Sýning Listasafnsins  ber heitið Þríviður og er samsýning þriggja íslenskra myndlistarmanna sem allir hafa notað trjávið í miklum mæli við gerð verka sinna.  Þeir eru Hannes Lárusson, Guðjón Ketilsson og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og eru m.a. þekktir fyrir skúlptúra sína og innsetningar.  Meðhöndlun listamannanna á þessum ævagamla efniviði er eins fjölbreytt og þeir eru margir, en áherslur þeirra bera þó keim af hugmyndalist og félagslega meðvitaðri myndlist síðari ára.  Á sýningunni er verkum þeirra stillt upp þannig að þau kallist á og kveiki neista hvert af öðru. Um leið verður grennslast fyrir um hlutverk trjáviðar í íslenskri myndlist og tengslin við útskurðarlist fortíðar. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.  Sýningin opnaði sunnudaginn 18. maí kl. 20.00 og er hér um að ræða sumarsýningu safnsins og mun hún því standa til 18. ágúst.
Laugardaginn 3. maí kl. 14.30 munu myndlistarmennirnir Karl Jóhann Jónsson og Sigríður Melrós Ólafsdóttir verða með leiðsögn fyrir almenning um sýninguna í Listasal Duushúsa. Á sýningunni mætast portrett verk þeirra beggja sem öll eru unnin út frá ljósmyndum en með afar ólíkri nálgun á viðfangsefninu.Sigríður Melrós sýnir grafíkverk og olíumálverk af sömu manneskjunni sem er nektardansmærin Lísa auk annarra grafíkmynda. Karl Jóhann sýnir málverk af fólkinu í kringum hann sem hann setur gjarnan í ný hlutverk. Hvert verk sýnir einhvern atburð eða stemmningu sem Karl spinnur upp og sviðsetur. Sýningin hefur fengið góða dóma og fjöldi gesta lagt leið sína í Duushúsin til að njóta verkanna. Sýningarstjóri sýningarinnar er Inga Þórey Jóhannsdóttir.Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er  í Duushúsum.  Þar er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00 og aðgangur er ókeypis.  Sýningin LJÓSMYNDIN ÍMYNDIN PORTRETTIÐ? stendur til 4. maí.
LJÓSMYNDIN ÍMYNDIN PORTRETTIÐ ?Föstudaginn 14. mars kl. 18.00 var opnuð sýning í Listasafni Reykjanesbæjar sem ber heitið Ljósmyndin ímyndin portrettið.  Á sýningunni mætast verk Sigríðar Melrósar Ólafsdóttur og Karls Jóhanns Jónssonar.  Það má segja að stefnumót listamannanna og verka þeirra sé byggt á því að nálgun þeirra á viðfangsefninu sé ólík þó bæði geri portrett. Bæði eiga það sameiginlegt að nota ljósmyndamiðilinn sem verkfæri í vinnuferlinu þó útkoman sé málverk, grafík eða teikningar. Sigríður sýnir mörg verk, grafíkverk og málverk af sömu manneskjunni sem er nektardansarinn Lísa. Áður hefur Sigríður gert fjölskyldumyndir, málað kaupmanninn á horninu og alla hans fjölskyldu og málað hópmynd af bifvélavirkjunum sem á undaförnum árum hafa séð um viðgerðir á bílnum hennar. Á síðasta ári urðu þó kaflaskil en þá sýndi hún í Gerðarsafni portrett af íbúunum á LitlaHrauni. Hún er að færast fjær þeim heimi sem stendur henni næst og er farin að skoða persónur og gera portrett af manneskjum sem lifa í undirheimum. Hún fjölfaldar á sýningunni myndir af sömu manneskjunni sem eykur enn á fjarlægð við sjálfa fyrirmyndina. –á sýningunni fá reyndar nokkrar myndir af eðalkarlmönnum að fylgja með sem  koma henni Lísu ekkert við. Karl Jóhann sýnir málverk þar sem hann hefur tekið fyrir tvær eða fleiri manneskjur á sama striga.  Karl málar gjarnan það fólk sem er í kringum hann, eiginkonu, börn,vini og sjálfan sig en á myndunum er þetta allt annað fólk, í öðrum hlutverkum. Hvert verk sýnir einhvern atburð eða stemmningu sem Karl spinnur upp og sviðsetur, sem virkar þannig að áhorfandinn gæti gleymt sér í að einblína á það sem ekki er sýnt. Í verkum Karls má oft greina beinar og óbeinar vísanir í listasöguna.  Spurningin er svo „hvað gerist“ þegar þessi verk eru saman komin?  Gæti þetta virkað eins og ættarmót þar sem kannski má sjá einhvern undirliggjandi fjölskyldusvip eða getur þetta jafnvel farið á hinn veginn þ.e. að allir verði sem ókunnugir samankomnir á almenningssvæði..... Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannesdóttir.Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er  í Duushúsum.  Þar er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00 og aðgangur er ókeypis.  Sýningin stendur til 4. maí.Nánari upplýsingar:Inga Þórey Jóhannesdóttir: 662-8785Sigríður Melrós Ólafsdóttir:663-9894Karl Jóhann Jónsson:  896-5669
Dans elementanna Laugardaginn 19. janúar verður opnuð sýning á nýjum olíumálverkum Daða Guðbjörnssonar í Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Dans elementanna.  Daði er einn af þekktustu listamönnum landsins og hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis.  Hann nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Ríkisakademíuna í Amsterdam.  Í texta Kristínar G. Guðnadóttur í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir m.a.:  “Elementin fjögur eða höfuðskepnurnar – vatn, loft, jörð og eldur eru áberandi í nýjum verkum Daða og skapa umgjörð eða leiksvið táknanna í formi landslags eða margræðs myndrýmis.” Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er  í Duushúsum.  Þar er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00 og aðgangur er ókeypis.  Sýningin Dans elemetanna stendur til 9. mars. Nánari upplýsingar:Daði Guðbjörnsson:  897-7434Valgerður Guðmundsdóttir: 864-9190
Gunnlaugur Blöndal Í tilefni opnunar á nýju útibúi Glitnis í Reykjanesbæ færðu forsvarsmenn bankans  Listasafni Reykjanesbæjar glæsilegt málverk eftir Gunnlaug Blöndal.  Málverkið sýnir konur við saltfiskvinnslu og hefur verið í eigu bankans um áraraðir og hefur verið staðsett í húsnæði bankans að Hafnargötu 60 síðan 1963.  Verkið er nú til sýnis á jólasýningu safnsins í Listasalnum í Duushúsum en sú sýning mun standa til 23. desember n.k.  Glitnir, með fyrrverandi útibússtjórann Unu Steinsdóttur í fararbroddi,  hefur frá fyrstu tíð verið dyggur stuðningsaðili Listasafnsins og nú er í gildi  samningur milli safnsins og bankans þar sem Glitnir greiðir aðgangseyri þannig að ókeypis er fyrir gesti á sýningar í Duushúsum.  Samningur Glitnis og Listasafnsins er gott dæmi um ánægjulegt samstarf öflugs fyrirtækis og menningarstofnunar í þágu almennings.
7. desember 2007
Myndin í stofunni Sú hefð hefur skapast í Listasafni Reykjanesbæjar að á jólasýningu hvers árs má sjá  sýnishorn úr verkeign safnsins.  Sýningin í ár er byggð á þessari venju en að þessu sinni bætast við verk frá Byggðasafni Reykjanesbæjar.  Sýningin er því samstarf beggja safnanna og markmiðið að skapa stofustemmningu fyrri ára.  Listasalurinn er mikið notaður til tónleikahalds í desember og ætlunin er að gestir upplifi hlýtt og notalegt rými, einhvers konar afturhvarf til stofunnar hennar ömmu!  Listasafnið sýnir gömul  landslagsverk unnin í olíu eftir marga af okkar ástsælustu málurum og frá Byggðasafninu koma útsaumuð veggteppi og reflar eftir listakonur fyrri tíðar.  Þetta er kjörið tækfæri fyrir bæjarbúa að sjá hluta af þeim perlum sem söfnin þeirra geyma.  Sýningin stendur til 23. desember og er opin alla daga frá 13.00-17.30.
19. nóvember 2007
Björg ÖrvarSunnudaginn 25. nóvember kl.14.00 býður Listasafn Reykjanesbæjar öllum sem áhuga hafa til leiðsagnar listakonunnar Bjargar Örvar um sýningu hennar. Sýning Bjargar er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Björg hefur sýnt víða og er löngu orðin þekkt fyrir sérkennileg málverk sem erfitt er að skilgreina, en  hvort sem þau teljast náttúrumyndir eða ekki eru þau fyrst og fremst einstök. Málverkasýning Bjargar Örvar opnaði 19. október og líkur henni 2. desember. Í Duushúsum er opið alla daga frá kl. 13.00-17.30 og aðgangur er ókeypis.  
18. október 2007
Björg ÖrvarFöstudaginn 19. október verður opnuð sýning á nýjum verkum Bjargar Örvar í Listasafni Reykjanesbæjar. Björg Örvar útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1979 og stundaði síðan listnám við University of California á árunum 1981-1983.  Björg hefur sýnt víða og er löngu orðin þekkt fyrir sérkennileg málverk sem erfitt er að skilgreina, en  hvort sem þau teljast náttúrumyndir eða ekki eru þau fyrst og fremst einstök. Í texta Halldóru K. Thoroddsen í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir m.a.:  “ Hér fer stríðinn málari.  Á þessari sýningu er mætt til leiks rauð agressjón.  Björg hefur fyrrum málað okkur græna mildi og blátt afskiptaleysi. Hvernig sem þessir litir kunna að hitta okkur fyrir eru þeir alltaf um það bil að bresta á límingunum en halda þó.”   Sýning Bjargar er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og  stendur til 2. desember.  Í Duushúsum er opið alla daga frá kl. 13.00-17.30 og aðgangur er ókeypis.  
Einar Falur Ingólfsson Nú líður að lokum sýningarinnar AFTUR í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum en henni lýkur 14. október. Um er að ræða ljósmyndir eftir Einar Fal Ingólfsson þar sem hann gerir æskuár sín í Keflavík að myndefni. Yfirskrift sýningarinnar er : "Ég sneri aftur til bernskuslóðanna og mátaði minningar við raunveruleikann. Sumt er breytt, annað síður. Og sumir eru enn til staðar." Sýningin hefur fengið góða dóma og fjöldi gesta lagt leið sína í Listasafnið. Listamaðurinn Einar Falur mun taka á móti gestum laugardaginn 6. október kl. 15.00 og ganga með þeim um sýninguna og segja þeim frá sínum hugrenningum í tengslum við myndirnar. Duushúsin eru annars opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og aðgangur er ókeypis.
Einar FalurSýningin AFTUR verður Ljósanætursýning Listasafns Reykjanesbæjar í ár og opnar föstudaginn 31. ágúst.  Um er að ræða ljósmyndir eftir Einar Fal Ingólfsson þar sem hann gerir æskuár sín í Keflavík að myndefni.  Yfirskrift sýningarinnar er : "Ég sneri aftur til bernskuslóðanna og mátaði minningar við raunveruleikann. Sumt er breytt, annað síður. Og sumir eru enn til staðar." Einar Falur er lærður bókmenntafræðingur og útskrifaðist síðar með MFA í ljósmyndun frá School of Visual Arts, New York 1994.  Hann hefur síðan unnið sem myndstjóri við Morgunblaðið ásamt öðrum verkefnum.  Myndir eftir hann hafa birst í blöðum og tímaritum víða um heim og hann hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði sem sýningarstjóri og einnig sýnt eigin verk bæði hér á landi og erlendis.  Vandaður bæklingur er gefinn út í tilefni sýningarinnar og í texta Jóns Kalmans Stefánssonar segir m.a. “Hér mætast  þroski og bernska. Horfin líf og lifandi augu. Þetta er glataður tími fundinn á ný. Eða með öðrum orðum: kjarni listarinnar. Hin vandasama, varasama og gefandi leit af því sem ekki er hægt að finna.”   Sýningin AFTUR er í sýningarsal Listasal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og  stendur til 14. október.  Í Duushúsum er opið alla daga frá kl. 13.00-17.30 og aðgangur er ókeypis.  
Ásgrímur-portraitSýning á Húsafellsmyndum Ásgríms Jónssonar líkur sunnudaginn 19. ágúst. Sýningin kemur frá Listasafni Íslands en L.Í. á stærsta safn verka Ásgríms. Húsafellsmyndir Ásgríms eru ákveðinn þáttur í þessari safneign en Ásgrímur dvaldist mikið á Húsafelli í Borgarfirði til að mála. Þangað kom hann fyrst til sumardvalar árið 1915 og aftur 1917 og 1919, eftir það varð Húsafell sá staður sem Ásgrímur tók mestu ástfóstri við og þar dvaldist hann reglulega á sumrin fram eftir ævi.  Um er að ræða bæði olíuverk og vatnslitamyndir og sýningarstjóri er Harpa Þórsdóttir. Sýningin hefur verið vel sótt og hlotið góða dóma.   Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum og þar er opið alla daga frá 13:00 til 17:30 og stendur sýningin til 19. ágúst.
ÁsgrímurSumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar, Húsafellsmyndir Ásgríms Jónssonar verður opnuð föstudaginn 15. júní kl. 18.00.  Sýningin kemur frá Listasafni Íslands en L.Í. á stærsta safn verka Ásgríms. Húsafellsmyndir Ásgríms eru ákveðinn þáttur í þessari safneign en Ásgrímur dvaldist mikið á Húsafelli í Borgarfirði til að mála. Þangað kom hann fyrst til sumardvalar árið 1915 og aftur 1917 og 1919, eftir það varð Húsafell sá staður sem Ásgrímur tók mestu ástfóstri við og þar dvaldist hann reglulega á sumrin fram eftir ævi.  Um er að ræða bæði olíuverk og vatnslitamyndir og sýningarstjóri er Harpa Þórsdóttir.    Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum og þar er opið alla daga frá 13:00 til 17:30 og stendur sýningin til 26. ágúst.
23. apríl 2007
Hafsteinn AustmannFöstudaginn 27. apríl kl. 18.00 verður opnuð sýning á Listasafni Reykjanesbæjar á verkum Hafsteins Austmanns, bæði olíu málverkum, akríl sem og akvarella myndum.  Hafsteinn hefur lengi talist til okkar allra færustu listamanna og spanna verkin á sýningunni tímabilið 1986-2007.   Aðalsteinn Ingólfsson segir: ,,Myndir Hafsteins, olíumálverk jafnt sem vatnslitamyndir, virðast ríkari af  blæbrigðum tilfinninganna en flest annað sem flokkast undir myndlist í dag. Hins vegar tekur listamaðurinn áhorfendum sínum vara fyrir að tengja tilfinningar eða upplifanir sem kunna að slæðast inn í myndir hans við þann sem heldur um pentskúfinn; myndirnar séu honum tæki til að vinna sig frá upplifunum sínum, ekki til að velta sér upp úr þeim.”   Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 10. júní. Listasalurinn er í Duus-húsum við Duusgötu 2-8 í Reykjanesbæ. Allar nánari upplýsingar má finna í síma 421 – 3796.
FæreyingarFöstudaginn 9. mars kl. 18.00 verður opnuð ný sýning í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum.  Þar eru á ferðinni Daninn Thomas Andersson sem sýnir skúlptúra og Færeyingurinn Kári Svensson sem sýnir málverk.  Málverk Kára eru litsterk og kraftmikil og sýna á áhrifaríkan hátt birtingarmyndir náttúrunnar í Norður-Atlantshafi.  Thomas sýnir hins vegar skúltptúra af manninum, hinum nakta og viðkvæma manni sem án allrar sýndarmennsku kemur fram eins og hann er.  Skúlptúrarnir eru afar persónulegir og kímnin ekki langt undan.  Tomas Andersson er að sýna í fyrsta sinn á Íslandi en Kári hefur áður tekið þátt í sýningum hér á landi.   Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 22. apríl.      
TvísýnaLaugardaginn 20. janúar kl. 14.00 verður opnuð sýning Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur og Arons Reys Sverrissonar í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og ber sýningin heitið Tvísýna. Um er að ræða málverk í anda raunsæisstefnu af börnum, húsum og umhverfi. Aðalsteinn Ingólfsson segir um þessa sýningu í inngangi að sýningarskrá “að verk þeirra Hlaðgerðar Írisar og Arons Reys þrífist á víxlverkan hins þekkta og óþekkta, um leið og þau kasti á milli sín - og til áhorfenda - spurningunni um náttúru hinnar hlutlægu listsýnar, hvort hún sé spegill eða gluggi.”   Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 4. mars.    
Sýning á safneignÍ dag 8. desember opnar sýning í listasalnum á nýjum verkum í eigu safnsins. Það sem verkin eiga sameiginlegt er að þau eru sköpuð eftir 1994 og hafa bæst í safneignina síðastliðin fjögur ár. Þetta eru allt málverk eftir Íslendinga, karlmenn og konur. Verk eftirtalinna listamanna eru til sýnis: Inga Þórey Jóhannsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Gunnhildur Þórðardóttir, Tolli, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Steinunn Marteinsdóttir, Íris Eggertsdóttir, Sossa, Guðrún Einarsdóttir og Valgarður Gunnarsson. Sýningin stendur til 14. janúar 2007.
Sigtryggur BjarniSunnudaginn 3. desember er síðasti sýningardagur á sýningu Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin ber heitið Sog og er á henni að finna m.a. olíuverk sem gera tilraun til þess að fanga hreyfanleika og kraft árvatnsins. Listamaðurinn verður með leiðsögn um sýninguna klukkan 14.00. á sunnudaginn og eru allir velkomnir og um leið hvattir til að mæta.
GlitnirGlitnir og Listasafn Reykjanesbæjar hafa gert með sér samstarfssamning til næstu tveggja ára um fjárhagslegan stuðning til safnsins og var samningur þess efnis undirritaður við opnun sýningar Sigtryggs Baldvins síðastliðinn föstudag. Glitnir mun styrkja Listasafnið um samtals 2 milljónir króna sem gerir safninu kleift að fella niður aðgangseyrinn á safnið. Glitnir verður þannig aðal samstarfsaðili safnsins og verður ein sýning eða verkefni á ári tileinkað honum úr verkefnaskrá safnsins. 
Sigtryggur BjarniFöstudaginn 20. október kl. 18.00 verður opnuð einkasýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Sog.  Viðfangsefni listamannsins er straumvatn og sýnir hann þarna ný málverk unnin með olíu á striga og rýmisverk. Sigtryggur Bjarni er fæddur árið 1966 og hefur haldið og tekið þátt í fjölda sýninga undanfarin ár, síðasta einkasýning hans var í Gallery Turpentine árið 2005. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 3. desember.   Við sama tækifæri verður undirritaður samstarfssamningur milli Glitnis og Listasafnsins.  
Steinunn MarteinsdóttirSunnudaginn 15. október lýkur einkasýningu Steinunnar Marteinsdóttur á Listasafni Reykjanesbæjar.  Listamaðurinn verður með leiðsögn um sýninguna þennan sama dag kl. 15.00 og eru allir velkomnir.    Sýningin ber heitið verk 1961-2006 og má þar líta úrval keramikverka Steinunnar síðustu 45 árin.  Einnig eru til sýnis málverk unnin á síðustu tveimur árum. Sýningin hefur verið fjölsótt og fengið jákvæða umfjöllun. Í dómi í Morgunblaðinu mátti m.a. lesa um sýninguna: “Á sýningu Steinunnar nú eru nokkur verk sem kalla má meiriháttar, verk sem ekki geta orðið til nema með einstaklega góðri færni og þekkingu á miðlinum jafnt sem útfærslunni.”   Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og er staðsett í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum, Duusgötu 2-10 í Reykjanesbæ. 
Steinunn MarteinsdóttirFöstudaginn 1. september kl. 18:00 var opnuð sýning í Listasafni Reykjanesbæjar á verkum Steinunnar Marteinsdóttur, bæði keramikverkum og málverkum.  Steinunn hefur lengi talist til okkar allra færustu listamanna og spanna verkin tímabilið 1961-2006.  Steinunn var í hópi þeirra fyrstu er lögðu fyrir sig keramik á Íslandi og eftir útskrift úr Handíða- og myndlistarskóla Íslands hélt hún til frekara náms í Þýskalandi.  Steinunn keypti ásamt manni sínum Sverri Haraldssyni, Hulduhóla í Mosfellsbæ árið 1969 og hefur rekið þar vinnustofu og gallerí síðan.  Steinunn hefur á löngum ferli sýnt verk sín víða um heim og hefur átt stóran þátt í að skapa keramik á Íslandi þann sess innan listarinnar sem verðugur er.Sýningin er opin alla daga frá kl. 13:00-17:30 og stendur til 15. október.
Guðrún Mynd  Laugardaginn 21. janúar n.k. kl. 15.00 verður opnuð einkasýning Guðrúnar Einarsdóttur á Listasafni Reykjanesbæjar. Guðrún sýnir þar rúmlega tuttugu ný verk unnin með olíu á striga ásamt skúlptúrum unnum úr frauðplasti og litarefni á tré. Í sýningarskrá sem gefin er út af þessu tilefni segir Aðalsteinn Ingólfsson m.a. um verk Guðrúnar: “ Í seinni tíð hefur Guðrún lagt bæði dýpri og heildrænni skilning í ,,náttúruna”, tengt saman hinar stóru lífrænu heildir jarðfræðinnar, smáheima líffræðinnar og ofurvíddir stjörnufræðinnar. Í nýjustu verkum hennar erum við stödd við upptök sjálfs lífsins, þar sem síbreytingin er eina staðreyndin sem hægt er að reiða sig á.  Um leið eru verk Guðrúnar langt í frá köld og vísindaleg; þvert á móti eru þau borin uppi af ríkum og fullkomlega ,,órökrænum” tilfinningum. Þær tilfinningar snerta umgengni okkar við þá margbrotnu og viðkvæmu lífrænu veröld sem við höfum fengið að láni og eigum að skila óskaddaðri til afkomenda okkar.” Guðrún Einarsdóttir hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum frá árinu 1990.  Hún hefur hlotið viðurkenningu sem einn af okkar áhugaverðustu listamönnum í dag og var m.a. einn af fulltrúum Íslands á Carnegie Art Award 1999.  Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og er staðsett í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum, Duusgötu 2-10 í Reykjanesbæ.  Sýningin stendur til 5. mars n.k.  
Húbert Nói Föstudaginn 21. október kl. 18.00 verður opnuð einkasýning Húberts Nóa Jóhannessonar á Listasafni Reykjanesbæjar.  Sýningin ber heitið 12 m.y.s (Altitude) og samanstendur af tveimur myndröðum og videoverki. Húbert Nói vinnur verk sín út frá GPS punktum og er önnur myndröðin 5 mælipunktar frá umhverfi Hjaltlandseyja og hin 5 mælipunktar við Búrfell.  Videoverkið er af blásandi háhitaborholu sem líta má á sem myndbirtingu skapandi athafnar.   Í sýningarskrá segir Ólafur Gíslason m.a.: “Þegar við hugleiðum óendanleikann í ríki náttúrunnar þá hættir hugsunin að höndla nokkurn hlutstæðan veruleika og fer ósjálfrátt að flökta um innlönd ímyndunaraflsins. Mörkin á milli hlutveru og hugveru leysast upp í móðu draumalandanna þar sem myndirnar þenjast út okkur verður villugjarnt, því þar duga engin GPS-mælitæki lengur; mælanleikinn er ekki lengur til staðar. Því vaknar þessi spurning: hvar liggja mörkin þarna á milli, hvar hættir hugurinn að "villast" í löndum dagdrauma okkar og hvar byrjar hinn haldbæri og hlutstæði veruleiki, sem við getum höndlað með mælitækni okkar, þannig að við vitum nákvæmlega hvar við erum stödd í veröldinni og þá um leið hver við sjálf erum í raun og veru?”   Húbert Nói hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum frá árinu 1986.  Hann hefur hlotið viðurkenningu sem einn af okkar áhugaverðustu listamönnum í dag.  Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og er staðsett í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum, Duusgötu 2-10 í Reykjanesbæ.  Sýningin stendur til 4. desember n.k.
Eiríkur Smith og konurnar í BaðstofunniFöstudaginn 2. september kl. 18.00 opnaði Listasafn Reykjanesbæjar sýninguna “Eiríkur Smith og konurnar í Baðstofunni”. Á sýningunni má sjá tæplega 50 verk eftir Eirík og fimm fyrrverandi nemendur hans í Baðstofunni, þær Ástu Árnadóttur, Ástu Pálsdóttur, Sigríði Rósinkarsdóttur, Soffíu Þorkelsdóttur og Þórunni Guðmundsdóttur. Eiríkur sýnir olíuverk en listakonurnar vatnslitamyndir. Baðstofan er rúmlega 30 ára gamalt menningarfélag í Reykjanesbæ og kenndi Eiríkur hópnum myndlist í rúman áratug. Þess má geta að þessi hópur fékk Menningarverðlaun Reykjaensbæjar, Súluna, árið 2002. Í sýningarskrá segir Aðalsteinn Ingólfsson: “Við höfuðborgarbúar erum einatt nokkuð svo sjálfhverfir, a.m.k. þegar menningin er annars vegar, teljum að fátt markvert geti átt sér stað á landinu án þess að fulltrúar okkar komi þar við sögu með einum eða öðrum hætti. Hins vegar er iðulega horft framhjá því að mótttökuskilyrði fyrir menninguna verða að vera fyrir hendi í héraði, annars er hætt við að sendingar frá höfuðborginni falli í grýttan jarðveg. Þar stuðla ýmiss konar grasrótarsamtök, kórar, klúbbar og listafélög, að félagslegum og menningarlegum þroska íbúanna.” Sýningin er á dagskrá Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar og er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30. Sýningin stendur til 16. október og er til húsa í sýningarsal safnsins að Duusgötu 2-10.
Sýning á sænskri glerlist Á sumarsýningu Listasafns Reykjanesbæjar má nú sjá sænskt listgler. Um er að ræða hina höfðinglegu gjöf sem Svíakonungur, Carl XVI Gústav, afhenti íslensku þjóðinni í október árið 2004 og varðveitt er í Hönnunarsafni Íslands. Verkin á sýningunni eru í kringum 60 eftir 50 helstu glerlistamenn Svía, jafnt sjálfstæða glerblásara sem og starfsmenn stóru glerverksmiðjanna, Kosta Boda og Orrefors. Um er að ræða úrval hins besta úr heimi nytjaglers og skúlptúrglers og þarna hefur öllum tæknibrögðum nútíma glerlistamanna verið beitt á töfrandi hátt. Aðalsteinn Ingólfsson kemst þannig að orði um glerið í sýningarskránni; “Vonandi nær það að “heilla og táldraga” Suðurnesjamenn eins og góð glerlistaverk hafa alltaf gert, þökk sé gegnsæinu, margþættri virkjun birtunnar og endurspegluninni sem eru aðalsmerki þess.” Sýningin kemur frá Hönnunarsafni Íslands og mun standa til 28. ágúst n.k. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum er opinn alla daga frá kl. 13.00-17.30.
28. apríl 2005
Martin Smida365 FISKAR - Opnun nýrrar sýningar á Listasafni Reykjanesbæjar Á Listasafni Reykjanesbæjar verður opnuð föstudaginn 29. apríl n.k. kl. 18.00 sýningin 365 Fiskar eftir listamanninn Martin Smida. Martin Smida er fæddur í Prag árið 1960 en hefur búið í Þýskalandi síðan árið 1974. Hann nam myndlist við listaháskólann í Düsseldorf og starfar nú að list sinni í Wuppertal. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Johann Wenzl opnar sýninguna. Verkið 365 fiskar samanstendur af 365 skúlptúrum úr alls kyns efnum og vakti mikla athygli í Þýskalandi þegar það var fyrst sýnt í september árið 2001. Aðspurður segir listamaðurinn sjálfur um þetta verk að fiskarnir geti endurspeglað, hver um sig, einhverja gamla minningu um augnablik sem geta verið misjafnlega mikilvæg. Þetta geta verið þunglyndisleg, létt, erfið eða jafnvel ófullgerð augnablik. Sýningin er hingað komin í samstarfi við félagið Germaníu. Sýningin stendur til 11. júní og er sýningarsalur safnsins í Duushúsum opinn alla daga frá kl. 13.00-17.30. frekari upplýsingar um Martin Smida er að finna á www.atelier-smida.de
Erlingur1Laugardaginn 12. mars n.k. kl. 15.00 verður opnuð í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum sýningin Erlingur Jónsson og samtímamenn. Erlingur Jónsson varð fyrstur til að hljóta heiðursnafnbótina Listamaður Keflavíkur sem nú kallast Listamaður Reykjanesbæjar. Erlingur þótti vel að þessum titli kominn þar sem hann hafði í áratugi unnið að listsköpun í þágu bæjarbúa, bæði með eigin verkum og ekki síður sem áhrifavaldur ungra og upprennandi listamanna í bænum en hann starfaði lengi sem kennari við grunnskóla bæjarins. Síðustu árin hefur Erlingur lifað og starfað í Osló. Á þessari sýningu er lögð áhersla á að sýna lágmyndir Erlings Jónssonar og brjóstmyndir en þær hafa ekki áður verið sýndar saman og sumar aldrei sést opinberlega fyrr. Einnig er persónuleika Erlings gerð skil með ljósmyndum og myndbandi, því maðurinn sjálfur er lífsins listaverk! Í sýningarskránni segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur m.a. um Erling: “ Þetta tvennt, innlifunarhæfileikinn og bókmenntirnar, er sennilega það sem sett hefur ríkulegast mark á listsköpun Erlings sjálfs. Hið fyrrnefnda skýrir að hluta næmið sem kemur fram í myndum af samtímamönnum, meðvitundina um að sérhver andlitsdráttur skipti máli þegar móta skal eftir lifandi andliti. Bókmenntirnar eru svo kveikjan að mörgum og fjölbreytilegum skúlptúrum listamannsins, sem velunnarar hans í Keflavík hafa sett upp í bæjarlandinu á undanförnum árum. “ Í sýningarskránni er einnig yfirlitskort af bænum þar sem búið er að staðsetja verk Erlings og gestum þannig gert auðveldara að skoða verkin í eðlilegu umhverfi. Auk verka Erlings Jónssonar má sjá á sýningunni ljósmyndir eftir Arnar Fells, Tom Sandberg og Vigdis Hindhammer og einnig er myndband eftir Viðar Oddgeirsson sem m.a. er byggt á viðtali Jónatans Garðarssonar við Erling. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00 – 17.30 og stendur til 24. apríl.
1. mars 2005
1. sýning Laugardaginn 22. janúar – sunnudagsins 6. mars Kristín Gunnlaugsdóttir 2. sýning Föstudaginn 11. mars – sunnudagsins 24. apríl Erlingur Jónsson 3. sýning Föstudaginn 29. apríl – 11. júní Martin Smida 4. sýning Fimmtudaginn 16. júní – sunnudagsins 28. ágúst Ásgrímur Jónsson – sýning frá Listasafni Íslands 5. sýning Föstudaginn 2. sept. – sunnudagsins 15. október Eiríkur Smith og Baðstofan 6. sýning Föstudaginn 21. okt. – sunnudagsins 4. des. Húbert Nói 7. sýning Fimmtudagurinn 8. des. – 15. janúar Safneignin
1. mars 2005
HnúkaþeyrFimmtudaginn 3. mars kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Duushúsum í Reykjanesbæ. Þar leikur blásaraoktettinn Hnúkaþeyr efnisskrá með tónlist eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Gordon Jacob. Tónskáldin Mozart og Jacob eiga það sameiginlegt að vera báðir afar hrifnir af blásturshljóðfærum. Mozart skrifaði þrjár blásaraserenöður og á tónleikunum verður leikin sú í c-moll. Efnisskráin endurspeglar að nokkru leyti þær tónbókmenntir sem til eru því að frá klassíska tímanum verður að fara fram til 20. aldarinnar til að finna tónlist fyrir blásaraoktett. Divertimento í Es-dúr eftir Gordon Jacob er kryddað með nýjum hljómi og ómstríðum frá síðustu öld þar sem hornin fá að njóta sín. Hnúkaþeyr hefur tónleikan á að leika þekkt stef úr óperunni Brúðkaup Fígarós eftir Mozart. Hnúkaþey skipa Peter Tompkins og Eydís Franzdóttir á óbó, Rúnar Óskarsson og Ármann Helgason á klarinett, Anna Sigurbjörnsdóttir og Emil Friðfinnsson á horn, Darri Mikaelsson og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fagott. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Félags íslenskra tónlistarmanna, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og menningarfulltrúa Reykjanesbæjar með styrk frá Menntamálaráðuneytinu.
21. febrúar 2005
Robert Nolan TrioSannkölluð tónlistarveisla var í Listasafninu sl. fimmtudag 3. febrúar þegar sígaunadjasshljómsveitin Robert Nolan trio spilaði í boði Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Trióið kemur frá Amsterdam og stoppar á tónleikaferð sinni hér á Íslandi og mun m.a. spila á Akureyri og í Vestmannaeyjum.  Robert Nolan Tríó er vel þekkt og hefur ferðast víða um heiminn vegna tónleika og eiga þeir marga aðdáendur hér á landi.  Þetta er tónlist í anda Django Reinhardt.   
17. janúar 2005
HúsiðÍ Keflavík opnar gallerý fyrir nútímalist á Hafnargötu 22. Gallerýið heitir SuðSuðVestur og er í umsjón Thelmu Bjarkar Jóhannesdóttur og Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur myndlistarkennara í Holtaskóla og Fjölbrautaskóla Suðurnesja.  Fyrsta sýning gallerýsins mun opna laugardaginn 22. janúar kl.15 með sýningu Magnúsar Pálssonar. Magnús Pálsson hóf sinn feril innan veggja leikhússins. Hann teygði sig fljótt yfir á öll svið listarinnar og sem myndlistmaður á hann rætur sínar m.a. að rekja til fluxus-hreyfingarinnar. Magnús var einn af forsprökkum SÚM og var frumkvöðull í stofnum nýlistadeildar við Myndlista og handíðaskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hann unnið mikið með video, hljóð, texta, raddir og rýmisverk og samið kórverk. Magnús vinnur að þessu sinni innsetningu með húmórísku ívafi sérstaklega ætlaða staðnum. Opið verður fimmtudaga og föstudaga milli 16 og 18 og laugardaga og sunnudaga milli 14 og 17. Sýningunni lýkur sunnudaginn 13. febrúar. SUÐSUÐVESTUR er undir verndarvæng Listasafns Reykjanesbæjar og fékk nú í haust styrk frá Reykjanesbæ til að hrinda starfseminni úr vör.   Suðsuðvestur er opið fjóra daga vikunnar þ.e. fimmtudaga og föstudaga frá kl.16 - 18 og laugardaga og sunnudaga frá kl.14–17. Annars er opið eftir samkomulagi.  sjá nánar á www.sudsudvestur.is
MátturinnFyrsta opnun safnsins árið 2005 verður sýning Kristínar Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu. Opnunin verður laugardaginn 22. janúar kl.17.00 og ber sýningin heitið …mátturinn og dýrðin, að eilífu….  Í verkum Kristínar eru tilvísanir í býsantíska myndhefð en hún stundaði um árabil myndlistarnám á Ítalíu og bjó m.a. í klaustri.  Flest verkanna eru unnin á árunum 2001-2004 og hafa aldrei verið sýnd áður. Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og fór þá beint í framhaldsnám til Ítalíu. Þar lærði hún m.a. íkonagerð í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993. Kristín hefur síðustu 15 árin tekið þátt í mörgum sýningum, hér heima og erlendis og er þetta 10. einkasýning hennar. Kristín hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar og hlotið nokkrum sinnum listamannalaun frá Menntamálaráðuneytinu, síðast árið 2002-3. Verk hennar eru í eigu fjölda opinberra safna, kirkna, fyrirtækja og einstaklinga. Í nýrri sýningarskrá segir Auður Ólafsdóttir listfræðingur m.a. um listamanninn. “ Í þeim persónulega reiti sem Kristín hefur helgað sér í listasögunni hefur stundum verið að finna sérkennilegar mannverur sem hver guðdómur og hver eilífð myndi vera fullsæmd af: fagureyga, toginleita öldunga með hárskúfa og í skóm með uppbrettri tá, standa þar tveir og tveir gegnt hvor öðrum, mitt í ómældu af bláu. Líkt og einsemd mannsins sem hefur þörf fyrir speglun eða samveru.” Og síðar í sama texta má finna: “ Í nýrri verkum Kristínar hafa öldungarnir ójarðnesku vikið fyrir rótföstum voldugum trjám, með trausta, samfléttaða boli. Tré finnast líka í eldri verkum Kristínar, en þau eru af öðrum toga, eru mjó og spíruleg, andleg tré. Nýju trén eru hins vegar gömul tré, með rætur djúpt í jörðu, krónan teygir sig hins vegar ekkert sérstaklega hátt til himins.” Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00 – 17.30 og stendur til 6. mars. Í tilefni 90 ára vígsluafmælis Keflavíkurkirkju eru 4 verk eftir Kristínu sýnd í safnaðarheimili kirkjunnar, Kirkjulundi og verður sá hluti sýningarinnar opnaður kl. 16.00 þennan sama dag. Það er okkur sönn ánægja að kynna bæjarbúum verk þessarar ungu listakonu. 
Þingvellir - KjarvalÍ sýningarsal Listasafnsins í Duus-húsum stendur nú yfir sýning á olíuverkum úr safneigninni. Um er að ræða verk eftir ýmsa listmálara frá mismunandi tímum þar sem náttúra Íslands er viðfangsefnið. Má þar m.a. sjá verk eftir gömlu meistarana Kjarval, Jón Stefánsson, Ásgrím Jónsson og Þórarin B. Þorláksson. Sýningin er opin alla daga frá 13.00-17.30 og stendur til jóla.
1. desember 2004
Gömlu meistararnirNýr vefur Listasafnsins lítur nú dagsins ljós. Hann  er unninn í vefumsjónarkerfinu Vefþór og hannaður í samræmi við vef Reykjanesbæjar. Grunnur vefsins var unninn haustið 2004. Gunnhildur Þórðardóttir hafði veg og vanda að því. Vefurinn var opnaður formlega 1. desember 2004. Meginefni vefsins eru upplýsingar um safneign lsitasafnsins og sýningar á vegum þess. Ritstjóri vefsins er Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi