21. apríl 2010
Listahátíð barna 2010

Listahátíð barna 2010Listahátíð barna sem nú verður haldin hátíðleg í 5. sinn er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra 10 leikskóla Reykjanesbæjar. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafi orðið kveikjan að þeirri stóru barnahátíð sem nú verður haldin í Reykjanesbæ þar sem virðing fyrir börnum og störfum þeirra og þörfum er höfð að leiðarljósi.

 

Yfirskrift listahátíðar barna árið 2010 er Hafið og á öllum leikskólum hafa börnin fræðst um hafið með margvíslegum hætti. Alls kyns listaverk hafa litið dagsins ljós, æfðir hafa verið nýir söngvar um fiska og haf, sjávardýr hafa verið krufin og svona mætti lengi telja. Hápunkturinn er sjálf listahátíðin sem sett verður með formlegum hætti í Duushúsum síðasta vetrardag, miðvikudaginn 21. apríl kl. 10.30. Það er vel við hæfi að sá viðburður verður einnig upphafsatriði Barnahátíðar í Reykjanesbæ.

 

Á listahátíðinni verður leitast við að skapa neðansjávarheim í Listasal með öllum þeim undrum sem þar finnast. Listasmiðja verður starfrækt í Bíósal sem stendur öllum bæjarbúum opin og þar verða einnig myndlistarverk frá öllum leikskólunum. Dagana 23. - 30. apríl koma leikskólarnir í heimsókn og standa fyrir stuttri skemmtidagskrá sem er öllum opin.

 

Sérstakir viðburðir tengdir hátíðinni verða tveir. Heimsókn Svabba sjóara sem fræðir börnin um íslensk vatnaskrímsli í Bíósal, laugardaginn 24. apríl kl. 14.00 og 15.00. Sama dag verður einnig sýning á nýveiddum sjávardýrum til sýnis á smábátahöfninni frá kl. 11.00 - 17.00.

 

Sýningin stendur frá 21. apríl til 2. maí og listasmiðjan verður starfrækt allan tímann. Opið virka daga frá kl. 11.00 - 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 - 17.00 (Laugardaginn 24. apríl opnar kl. 11.00) Ókeypis aðgangur.

 

Myndir frá Listahátíð barna 2010

 

Skemmtidagskrá leikskólanna

Föstudagur 23. apríl
10.00 Háaleiti 

Mánudagur 26. apríl
13.30 Hjallatún

Þriðjudagur 27. apríl
10.30 Gimli
13.30 Garðasel

Miðvikudagur 28. apríl
10.30 Akur
13.30 Heiðarsel

Fimmtudagur 29. apríl
10.30 Tjarnarsel
13.30 Holt

Föstudagur 30. apríl
10.30 Völlur
13.30 Vesturberg