frá sýninguSýningahald er viðamikill liður í starfsemi Listasafns Reykjanesbæjar. Safnið kemur beint og óbeint að fjölda sýninga sem haldnar eru í bæjarfélaginu m.a. á Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar.

Í Listasal Listasafnsins eru haldnar að jafnaði um 5 sýningar árlega þar sem haft er að leiðarljósi að sýna það markverðasta og besta sem völ er á hverju sinni. Auk þess eru sýnd verk úr safneign Listasafnsins í desember. Sérstakt listráð er starfandi við safnið.

Listasafninu ber, skv. sýningarstefnu safnsins, að vera vettvangur nýrra strauma í myndlist og stuðla að gagnrýnni skoðun á henni. Þessu hlutverki hefur safnið reynt að ná með nánu samstarfi við sýningarrýmið Suðsuðvestur.

Þar að auki kemur Listasafnið að sýningarhaldi annars staðar í bæjarfélaginu með ýmsum hætti svo sem við útvegun á sýningarhúsnæði, aðstoð við hönnun og prentun bæklinga og boðskorta, aðstoð við stykumsóknir, kynningu til fjölmiðla o.s.frv.